17desember

Fáránlega dugleg!!

Ég er svo fáránlega dugleg að það er ekki eðlilegt. Líður samt ekkert betur með það:( hélt að maður ætti að vera svon glaður með sig þegar maður væri duglegur. Er sko búin að þvo 13 þvottavélar á 2 og hálfum degi. Vaska endalaust upp, þurka af hverju einasta stikki í þessu húsi, redda öllum jólakortunum, öllum gjöfunum nema 4...(plús jólagjöfina hans Ísaks sem ég get bara ómögulega fundið út hvað á að vera), búnað vera dugleg í ræktinni meirasegja, en er svo eftir að mála:/
Gæti samt ekki verið í minna jólaskapi þessa dagana þar sem ég er ekki með eitt einasta jólaskraut hérna á heimilinu, og er ekki einu sinni búin að ákveða hvernig jólin verða hjá okkur. Hugsa samt að við Ísak verðum bara heima. Mundum þá líklega borða hjá ömmu eða eitthvað þar sem að ég er með bilaðan ofn, og kann ekkert að elda hvort sem er, og fara svo bara í kotið okkar að opna pakka með Ýmsa...

Það er samt svo lítið að frétta hérna að það er ekki skrítið að maður sé pirraður. Aldrei neitt í TV, alltaf óþolandi veður, undur á heimilinu sem er með ragettu i rassinum held ég, og eigum við að ræða eitthvað litinn á þesari blessuðu stofu hérna. Díses það er alveg á hreinu að manneskjan sem valdi þennan lit hefur verið blind, eða þá með andskoti góðan húmor hehe:P En hún Gaujína hefur boðið mér aðstoð sína, og einsog það er nú mikið gull af manni þá er ég í góðum málum;)
Annars þá komu Gaui og Ingó kæró að passa fyrir mig í gærkvöldi hehe. Ég skelti mér í göngó með Ými í snjókomunni til að reyna að róa þennan pung niður, gekk hinsvegar ekki vel og kappinn varð svo illa ferskur eftir þetta og var á eldi hérna heima langt fram á nótt. Vildi svo heppilega til að ég komst ekki í það að fara að sofa fyrren um 4 í nótt þannig að hann gat leikið sér þartil hann lognaðist útaf :) Ísak Hrafn svaf svo bara til 20 min yfir 10!!!! Loksin ákvað hann að vera góður við mömmu sína þessi garmur:P
Annars er hann alltaf jafn óendanlega skír þessi krakki. Farinn að mynda setningar og allt :P Alveg ótrúlegt að hann sé ekki byrjaður að segja djöfullinn og fokkSealed Mamma hans er neflilega ansi dugleg í þeim orðum:/
En hey ANTM er byrjað..leiter...

17. desember 2008 klukkan 21:09
Katrín Inga Gísladóttir
Engin athugasemd
04desember

Veik í tætlur

Jájá kellingin ákvað að næla sér í strettokokka, og það ekkert smá.
Þetta byrjaði bara á mánudagskvöldið þegar ég var nýkomin frá spákallinum, og svo morguninn eftir var ég svo svakalega aum í hálsinum, með tvö kílí útur honum, og hálsinn svo þröngur eitthvað að ég gat varla andað (hvað þá borðað eða drukkið). Þannig að ég fór strax til læknis eins og þroskað fólk gerir.
Nei nei fékk þá læknirinn ekki bara hjartastopp nánast og var alveg steinhissa hvað þetta væri mikil sýking. Hún sagðist aldrei hafa séð svona og hvað þá að þetta gæti orðið svona svakalegt á einum sólarhring. Þannig að hún tjáði mér þær gleðifréttir að þetta mundi versna og vildi bara helst leggja mig inn.
En neiiii, einhver annar læknir sagði að það þyrfti ekkert..og þegar amma sagði honum seinna um kvöldið að ég væri bara búin að drekka hálfa kókómjólk í nánast sólarhring og kæmi bara engu niður, og væri auðvitað að farast úr hungri, þá sagði hnn henni að ég gæti nú alveg haldið út eitthvað lengur án næringar!! Agalega smekklegur og ljúfur læknirSurprised  ég veit alveg að fólk getur lifað í nokkra daga án þess að fá mat...en ég þarf bara mat...
Við getum þá allavega huggað okkur við það að ég léttist við þetta...eða ef ég geri það ekki núna þá geri ég það aldrei. Ef þessi helvítis jólabjórs björgunarkútur fer ekki að fara af mér þá barna ég mig bara og verð ólétt það sem eftir er til að hafa afsökun að vera svona. Og han nú!!
Versta við þessi veikindi er samt að ég má ekkert hitta elsku Ísak minn. Einsog það er nú gott að fá að vera í friði þegar maður er veikur, þá finnst mér rúmið mitt agalega tómlegt og hvað þá morgnarnir þegar ég vakna með Ými:/ en hann er hjá pabba sínum og hefur það voða gott það litli prinsinn...svo fæ ég vonandi að hitta hann eftir helgi. Vil alls ekki smita hann því að ég veit núna hvernig það er að kyngja rakvélablöðum og ekki vil ég að fallegi sonur minn upplifi það.

Annars nenni ég bara ekki að blogga þessa dagana enda ekki mikið að gerast nema þessi yndislega upplífgandi veikindi mín.
Þannig að ef einhver er orðinn þreyttur á vinnunni er upplagt að koma til mín, gefa mér einn koss og næla sér í ágætisfrí:P
04. desember 2008 klukkan 01:42
Katrín Inga Gísladóttir
Engin athugasemd
25nóvember

Lífið

Allt gott og blessað á þessum bænum. Jólin alveg að koma og ég er ekki búin að kaupa eina gjöf...og ég þarf sko að kaupa þær margar úff!! Eða þarf náttúrulega ekkert, en vil gefa þeim sem mér þykir vænst um gjafir og þeir eru bara svo margir. Á líka eftir að gera jólakort, og það sem pirrar mig óstjórnlega er að ég bara næ ekki að taka mynd af þessum gaurum mínum saman. Eða allavega ekki fallega mynd hehe, en það kemur það er ég viss um.

Annars er Ísak búnað vera óeðlilega pirraður í lífinu undanfarið. Allt er ómögulegt og hann vælir í mér stanslaust. Lætur ekki þannig annarsstaðar, nema kannski smá hjá pabba sínum. Hann var hjá mömmu yfir helgina og fór að mótmæla og svona. Gekk bara rosalega vel. Við sistkynin fórum svo í mat þangað á laug og þá var minn með svaka sýningarstæla við okkur hehe og lét mjög illa. Mamma og Þór voru bæði í losti yfir hvernig hann lét, en jájá svona lætur hann við mig ALLTAF ;) hehe hann er nú samt alltaf yndislegasti strákur í heimi og vill alltaf vera að kyssa mig og knúsa þessi moli. Hann er alltaf að tala um Ými sinn, en er frekar pirraður á honum á daginn þegar hann fær ekki að leika sér í friði greyið. En onum finnst rosa sport að fara í göngutúr í kerrunni ef að Ýmir fær að koma með í bandinu;) Svo segir hann öll orð og virðist vita bara allt..við foreldrarnir erum alltaf jafn hissa á þessum litla snillingi sem við eigum ;)

Ýmir er allur að koma til en er óttalegur gormur eitthvað. Tætir allt og stelur öllu í bælið sitt. Stal um daginn risa gólfmottu og sá ekkert athugavert við það neitt. En ann er farinn að skilja aðeins betur hvað ég er að meina með NIÐUR og FRAM hehe, en annars finnst honum allt gaman og heldur að allir vilji elska sig og knúsa. Það sem honum finnst samt skemmtilegast er þegar ég reyni að þrífa úff...þá missir minn sig bara í hamingjunni og hleypur um allt geltandi og hoppar upp og niður um allt hehe. Varðeðlið er líka farið að gera vart við sig já honum. Þegar það er myrkur er hann rosa var um sig úti, og þar sem að það er allt morandi í köttum hérna þá setur hann á sig svaka kamb og geltir hann agalega mikið á kvöldin. Ég er að verða vitlaus á því, en nágrannarnir örugglega enn meira. :/

Annars er voða lítið að gerast í okkar lífi, værum alveg til í að fólk mundi koma oftar að eimsækja okkur ;)

Kv. úr Kötukoti :)
25. nóvember 2008 klukkan 23:18
Katrín Inga Gísladóttir
Engin athugasemd
17nóvember

Sagana af gamla manninum

Einn sunnudagsmorgun kl11 fyrir umþaðbil mánuði síðan var ég ekki mjög hress. Hafði verið á djamminu daginn áður og sat í kósíheitum heima í smá þynku, og var nýskriðin aftur upp í rúm til að leggja mig. Svo heyri ég að útidyrahurðin er opnuð og furða mig strax á því að Regína sé komin að sækja bílinn sinn svona snemma.
Svo heyri ég karlmannsrödd sem er að spjalla við hundinn, og er bara bíddu vó kallinn kominn að gera við þakið kl 11 á sunnudegi?? Hendi mér í slopp og fer fram. Í eldhúsinu blasir þá við mér gráhærður, skítugur og mjög lufsóttur maður. Hann spyr mig hvort ég búi hér og ég svona Haaa, jááá. Þá tjáir hann mér það að hann þurfi að nota klósettið hjá mér. Ég var svo stjörf að hissi og rétt náði að stama aftur haaaa jáá, það er hér. Fer svo út að reykja og er bara wtf hvað er í gangi? Vissi ekki hvort ég ætti að hringja i ömmu, eða já jafnvel lögguna... Nei nei heyri ég ekki félaga minn drulla þessari fínu blautu skitu inná baðherberginu mínu!!! Byrja að kúgast þarna og vona innileg að þetta hafi bara verið piss.
Gamli kemur út og heimtar öskubakka. Þegar þarna er komið við sögu er ég aðeins búin að stappa stálinu í mig og segi honum að ég vilji ekki að hann reyki inni, og vilji bara helst ekkert hafa hann inni á heimilinu mínu þar sem ég þekki hann nú ekkert. Hann bara nei nei ekkert mál, ætlaði til vinar míns en hann var ekki heima.
Þannig að jááá, þá fer maður bara í næsta hús og drullar hugsa ég frekar grumpy! Svo biður hann mig um að hjálpa sér að ná í sígaretturnar því að hendin á honum sé lömuð...
Ég svona sæll, nei neitaði svo sannarlega að sækja eitthvað í þessa vasa en hjálpaði honum bara að ná einni úr pakkanum. Svo töltir lufsi af stað og tjáir mér nokkur orð um uppeldið á hundinum mínum!!

Gífurlega skemmtileg restin af deginum sem fór í að sótthreinsa baðherbergið....kláraði heila flösku af klósetthreinsi og var í uppþvottahönskum að þrífa allt. Var að þessu allan daginn með smá pásum...

Kannski gaman að taka það fram að hann gleymdi að sturta niður!!

17. nóvember 2008 klukkan 23:27
Katrín Inga Gísladóttir
6 athugasemdir
12nóvember

Ekkert verið að skafa ofan af þessu haha

Hrútur (20. mars - 20. apríl):  Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp
og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið.
Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.


Naut (20. apríl - 21. maí):   Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi
eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur
sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.


Tvíburi (21. maí - 20. júní):   Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað,
með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.


Krabbi (21. júní - 23. júlí):   Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig,
nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum.
Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur
og sjálfsvorkunnsamur.


Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt
og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú
hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.


Meyja (23. ágúst - 23. september):   Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki,
en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar
en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.


Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan
í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur,
enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.
 

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember):   Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er
annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.


Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr
einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika
þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.


Steingeit (21. desember - 20. janúar):  Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum,
alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn,
enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.


Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig
eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan
innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.


Fiskur (19. febrúar - 20. mars):  Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða
í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

12. nóvember 2008 klukkan 01:54
Katrín Inga Gísladóttir
5 athugasemdir
11nóvember

Nóg að gera

Jæja maður er bara vakandi á þessum tíma;) Það gerist sko ekki hvenær sem er get ég sagt haha..en við Ísi vöknuðum kl hálf9 bara og ég skutlaðist með hann hérna yfir til dagmæðrana hans hehe:P Fór svo heim að ganga frá og taka til í svona klst. Skellti mér svo með hann í ungbarnaeftirlit sem gekk mjög vel. Hann var í svaka stuði og talaði á milljón bara. Mældist 88cm eða eitthvað og 14,3 kgSurprised Frekar ofvaxið þetta barn en heldur alveg sinni kúrvu sem er bara flott. Þannig að ef einhver ætlar að gefa honum föt í jólagjöf þá gengur ekkert að kaupa minna en 90. Svo fékk anginn sprautu og grét og grét greyið. Sem betur fer var Arnar með því ég höndla þetta bara ekki og fer nánast sjálf að gráta:/

Svo slasaði aumingja Ýmir sig í gærkvöldi. Ég skellti mér bara niður í kjallarann góða til að sjá um þvottinn og hlerinn datt ofan á annan framfótinn á greyinu. Miðað við óhljóðin mætti halda að fóturinn hefði klippst af en sem betur fer er hann bara marinn. Arnar var að passa uppi og fékk ekkert smá sjokk...kallaði á mig að hann væri fótbrotinn:/ En hann er allur að koma til litla dramadrottningin og er farinn að nota fótinn smá:)

Alltaf nóg að gera á þessum bæ;)

Erum ekki enn búin að ná músinni en það kemur. Ýmir er loksins farinn að láta hana pirra sig...eða loksins já, hann geltir hvað sem kl er ef hann verður var við hanaYell Ekki alveg að falla í kramið hjá mér en vonum bara að hann fari að eltast við hana og nái henni;) 

Við vorum hjá Erlu nánast í allan gærdag og skemmtum okkur vel. Ýmir fékk að fara í bað en Ísak neitaði hehe. Og að sjá gaurinn. Þetta var sko fyrsta baðið hans og minn lá bara á bakinu og lét stjana við sig. Honum fannst bara æði að láta nudda sápunni í sig og svona hehe algjör nautnaseggur þessi gaur;) Ísak fannst líka svo gaman að sjá hvutta sinn í baðinu að hann skríkti allan tímann hehe.

Annars ætla ég eiginlega að leggja mig smottó núna fyrst að hundsi er orðinn þreyttur;)

11. nóvember 2008 klukkan 12:05
Katrín Inga Gísladóttir
Engin athugasemd
05nóvember

Allt að gerast

Jæja þarf maður ekki að blogga fyrst að maður er kominn með nýtt blogg?  ekki það að það sé gífurlega töff að blogga. ég bara verð að gera eitthvað við þessar hugsanir minar, annars endar með að ég hringi bara í ömmu og segi henni þær hehe, og ekki viljum við það nú :P

Allavega þá er allt voða gott að frétta hér af okkur. Við Ísak búum í ELDgömlu húsi sem er sko byggt 1895 hehe, og er nánast ekkert búið að gera við það að ráði. Köllum það bara Kötukot hehe. En það er bara kósí hérna hjá okkur, fyrir utan það að það er músarhóra eitthvað að þvælast hérna. Hún fer ekki í neinar gildrur eða neitt þannig að ég er enn að hugsa um einhver svaðaleg ráð til að ná henni.

Ísak er hjá dagmömmum hérna í sömu götu sem er mjög fínt. Þá þarf ég bara að skipta á honum þegar hann vaknar, henda honum í föt og skottast hérna yfir götuna bara. Mjög þægilegt. Svo erum við sko búin að fá okkur hund sem heitir Ýmir. Í ættbók heitir hann Gunnarsholts Argos, en kellan ég ákvað að prinsinn yrði hafa íslenskt nafn hehe.
Það gengur bara vel með hann og Ísak Hrafn talar rosalega mikið um Ými sinn. Þeir eru samt frekar abbó út í hvorn annan og eru alltaf að keppast um athygli mína...Ýmir er líka algjör naggrís og nagar bókstaflega allt. En ég hugsa bara til þess tíma þegar hann verður orðinn svona 2 ára og Ísak 3 ára, þá verða þeir góðir félagar :)

Heyrðu svo fékk kellan ekki endurhæfingalífeyrinn nuna um mánaðarmótin vegna þess að það gleymdist að sækja um nýjann *dæs* en ég fer í bæinn á morgun að reyna að redda því. Annars sjáum við fram á núðlur um jólin!!

Jæja þetta er gott að sinni, ætla að reyna að gera eitthvað fyrir þessa síðu svo hún líti ekki svona illa út greyið.
05. nóvember 2008 klukkan 22:06
Katrín Inga Gísladóttir
6 athugasemdir
03nóvember

Breyta aðeins til

Jæja ég ákvað að breyta aðeins til að byrja bara aftur að blogga. En fyrst að ég er svona öflug þá þíddi ekkert annað en nýtt svæði hehe;)

En allavega þá er allt gott að frétta hér á bæ. Ég, Ísak og Ýmir hundurinn okkar búum í litlu húsi og erum bara að hafa það mjög fínt. Hann er hjá dagmömmum hérna í sömu götu þannig að það er alltaf gott að geta hlaupið bara yfir með hann, sérstaklega þar sem ég er ennþá á Hvíta Bandinu.

En ég ætla að reyna að gera þessa síðu eitthvað fína og fer svo að blogga meira þegar það er allt komið í lag hehe

03. nóvember 2008 klukkan 22:57
Katrín Inga Gísladóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Textareitur

Sæll hvernig virkar þetta hehe

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Katrín Inga Gísladóttir
  • Netfang: katrininga86@hotmail.com
  • Staður: Akranes

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari